Ha.... kemur á óvart !!

Greinilegt að spilling er sífellt að aukast útum heim allan og greinilegt að við íslendingar erum engin undantekning frá þeirri reglu eins og sést á þessar frétt um þennan blessaða varðstjóra.

 

Mér finnst það samt skondið að það þurfi að taka það fram í lok fréttarinnar að varðstjórinn sé ekki við störf meðan verið er að rannsaka hvort hann hafi misnotað aðstöðu sína sem varðstjóri.

 

Liggur það ekki alveg í augum uppi - en svo á hinn veginn þá eiga menn að vera saklausir uns sekt er sönnuð. Er ekki búið að dæma manninn með því að birta svona frétt og er hann í raun ekki orðinn sekur þrátt fyrir að rannsókn sé ekki lokið.

 

Það er naumast að lögreglan er mikið í fréttum þessa dagana. Sá einmitt hinn mæta Geir Jón í Ísland í dag í gær (finnst alltaf jafn skondið að segja "Ísland í dag" í gær) og í Kastljósinu. Hann var nú ekki í alveg jafn alvarlegum hugrenningum í Ísland í dag þar sem að verið var að spjalla um hvort fullt tungl hefði þau áhrif á fólk að það yrði árásargjarnara og gat Geir Jón ekki neitað því að eflaust væri eitthvað til í því. En í Kastljósinu var hinsvegar hann Helgi Seljan að fara yfir aðeins alvarlegri mál heldur en tunglstöður. Þar ræddu þeir um huganleg afglöp lögreglumanna í starfi í sambandi við alvarlega líkamsárás sem átti sér stað um helgina, nei ég er ekki að tala um þegar að Eiður Smári datt á bossann, heldur þegar að bitið var stikki úr eyra ungrar stúlku og hún lamin og spörkuð í jörðin.

 

Ég ætla svo sem ekkert að tjá mig um þetta mál, finnst bara sláandi að svona lagað skuli vera að gerast í miðbænum og svo strax daginn eftir þá kemur frétt um það að varðstjórar lögreglunnar séu að misnota aðstöðu sína. Maður getur því ekki komist hjá því að velta því fyrir sér hvort að það sé bara almenn spilling innan lögreglustéttarinnar og að í raun séu eftil vill ekki allir borgarar landsins jafnir fyrir augum þeirra sem standa vörð um lög og reglu þessa lands. 


mbl.is Varðstjóri ákærður fyrir brot í opinberu starfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: pirrhringur

ég sá ekki Ísland í dag - í gær - en mér finnst stórmerkilegt að löggan hafi tekið undir þetta með fulla tunglið, það finnst mér alveg magnað

þessi líkamsárás fyrir utan Sólon er alveg skelfileg... meika ekki að hugsa um hana, ömurlegt bara hvernig miðbærinn er hættur að vera hlýlegur og öruggur djammstaður

pirrhringur, 1.8.2007 kl. 12:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband